Monday 2 July 2007

Fimmvörðuháls...fram og til baka;)

Maður er nú bara smá dasaður skal ég segja ykkur. Enda kannski heldur mikið að gera og það hefur ekki verið leiðnlegt!
Fór í morgunflug á föstudaginn (vaknað 4:50) kom heim, fór að versla og við keyptum okkur líka frábæra útivistarjakka fyrir afmælis peningana frá Mömmmu og Palla. Svo var farið í að græja fyrir helgargönguna, gera nesti og pakka. Skelli mér svo í þrítugsafmæli og fór ekki að sofa fyrr en um 2 leytið. Vaknaði 5:30 og við brunuðum af stað áð Skógum. Þar gengum við Fimmvörðuhálsinn og það var helvíti gaman. Í Þórsmörk tók Frikki vinnufélagi Peters á móti okkur og bauð okkur í grill. Við gengum reyndar svona 6 km aukalega við það að leita að Rakel vinkonu í Þórsmörk. Hún fannst á endanum. Allt í einu var komið fram yfir miðnætti og við beint í háttinn enda vaknað snemma og Fimmvörðuhálsinn gegninn aftur til baka. Allir héldu að við værum eitthvað rugluð en þetta var bara ekkert mál og þrusugaman. Við vorum orðin svolítið stirð í lokin og hlupum því nokkra spretti inn á milli. Lúin og þreytt komumst við í rúmið um miðnætti í gær og ég vaknaði aftur kl. 5 í morgun og fór í vinnuna. Ég var nú frekar búin á því en þetta reddaðist þegar leið á daginn og eftir tveggja lítra kaffidrykkju.
Svo kíktum við á nýbakaðan son Óla og Dísu og svo sit ég hér og er að vona að ég verði ekki kölluð út í vinnu á morgun. Veitti ekkert af smá svefni. Sérstaklega þar sem ég er að fara að ganga Móskarðshnjúka annað kvöld, það tekur ca. 3-4 tíma.
Jæja, best að reyna að slappa af, á frekar erfitt með það þessa daganna. Það er eind og ég sé á spítti alla daga. Þetta gerir fjallaloftið, enda ekkert skemmtilegra en að vera á fjöllum! Halleluja!

1 comment:

Anonymous said...

Hæ sæta mín
já ég frétti af ykkur á fjöllum um helgina... og svo löbbuðuð þið aftur til baka OMG... ég er að mana mig í að fara á Esjuna á morgun... það væri nú bara upphitun fyrir þig. :) Stolt af þér, ekkert smá dugleg.
Knús og kossar, Hildur.