Saturday 21 April 2007

Þetta er allt að koma..

Já, lífið púslast saman, smátt og smátt. Stundum langar mér bara að selja allt og fara aftur af stað. Peter greyið er alveg að gefast upp á mér. Hann er annars kominn heim kallinn, svartur að vanda.

Við áttum ansi skemmtilegt samtal í gegnum webcam nokkru áður en hann kom heim. Þetta byrjaði allt á léttu nótunum um hvernig væri á skíðum og hvernig mér liði í öxlinni.
Svo byrjaði ég að tala um að ég væri búin að finna tvo bíla sem að við gætum keypt. Jújú, spennandi sagði Peter.
Svo talaði ég um að ég væri búin að vera að þrífa eins og óð væri með vinstri í íbúðinni; ertu ekki glaður með það Peter minn? Jú frábært.
Svo sagði ég; æi, mér finnst að við ættum að skipta um eldhús innréttingu. Peter: nú, ég hélt að þú ætlaðir í nám til útlanda og langaði að selja íbúðina. Linda: já, en það gerist kannski bara seinna. Svo finnst mér íbúðin ekkert spennadi, vil bara selja hana líka. Svo á maður ekkert að eiga bíla, maður á bara að hjóla. Peter: varstu ekki að tala um að kaupa bíl rétt áðan?
Linda: Jú, en hvað segirðu um sjálfboðaliðastörf í Afríku? Peter: Ha!? Æi, linda nenni ekki þessu rugli, ég er svangur.
Linda: Svangur!, það er fullt af fólki í heiminum sem fær ekkert að borða. Ég er ekkert að grínast með þetta Peter, það er fullt hægt að gera í Afríku.
Samtalið endaði þannig að Peter gaf mér puttann í cameruna og sagði bæ.

Mamma var svo viss um að hann myndi bara ekkert koma aftur til Íslands, enda ekki mönnum bjóðandi upp á svona rótlausan rugludall eins og mig!!

Svona var nú það. En hann kom og við erum búin að gera íbúðina stórglæsilega. Ég fékk Hjölla vin okkar til að koma Peter á óvart og við pússuðum upp parketið áður en Peter kom heim. Við Peter erum síðan búin að olíubera það og mála alla íbúðina hátt og lágt. Með frábærri hjálp mömmu og Palla, enda ég freka einhent. Næsta mál á dagskrá er að ganga frá og flytja inn. Það verður bara gaman að fara heim aftur.

Bula!

2 comments:

Anonymous said...

Elsku Lindan min,
Thu ert nu ekkert sma fyndin. Eg skelli hlo herna upphatt i vinnunni. Hlakka til ad sja thig eftir nokkra daga rotlausa stelpan min!
Eva

Anonymous said...

Ég skal koma með þér til Afríku eða eitthvað annað til þess að reyna að bjarga heiminum. Ef þú vilt þá er ég til...ask