Tuesday 24 April 2007

Home, sweet home!

Þá er komið að því að fytja endanlega inn í íbúðina aftur. Þetta er líka komið gott, 6 mánuðir í ferðatösku/bakpoka er fínt. Ætli maður fái ekki víðáttu brjálæði eða einhverskonar brjálæði þegar maður flytur inn í svona mikið pláss á ný. En Adam verður nú ekki lengi í paradís því Andy flytur inn til okkar í byrjuna maí. Vei, alveg heilir 6 dagar sem við verðum í normal lífi.

Jibbý, Eva mín er að koma eftir 3 daga. Get ekki beðið eftir að hitta þig, enda er maður ekki heil manneskja án umbans. Ég er með nokkur gigg í gangi Eva mín sem þú þarft að fara yfir fyrir mig. Ég gaf Flóka Joe Boxer náttföt í afmælisgjöf og Rakel heimtaði catwalkið í miðju barnaafmæli. Ekki gat maður nú neitað því, en ég rukkaði ekkert fyrir það. Hvað gerir maður ekki fyrir vini sína! Hahahah.

Hilsen

3 comments:

Anonymous said...

Hvada ansk. agaleysi er thetta. Vera med "show" og taka ekkert fyrir thad. Thetta gengur nu ekki lengur. Eins gott ad eg er ad koma heima "to sort it out". Hlakka endalaust mikid til ad sja thig.
Kvedja Umbinn.

Anonymous said...

Velkomin heim bæði tvö...og þrjú í næstu viku. Vinsamlegast taka frá 5. okt og 23. jan. í afmælis-catwalk gigg hér í Horsens. Eva ég ræði svo bara við þig um verð og dagpeninga.

Ég er annars bara í einhverju kóma milli atriða í vinnunni. Er alveg komin með ógeð á dönskum fundum og enskum kynningum. En á samt eftir einn dag í Kolding á morgun.

Hilsen til næste gang...

Anonymous said...

Ja Lisa,
Vid getum raett thessi mal betur thegar naer dregur. Aldrei ad vita nema madur geti gefid einhvern fjolskyldu afslatt.