Wednesday 28 May 2008

Myndir ofl.




Hej,
Ég byrjaði i meðgöngusundinu í dag og er mjög ánægð með það. Hlakka til að fara í næstu viku.
Það gengur rosalega vel í vinnunni, það er búið að bjóða mér að vera eins lengi og ég get og vil. Einnig er búið að spyrja mig hvort að ég komi ekki aftur eftir barneign og sleppi því bara að fara í nám og taki að mér stærri stöðu. Þannig að það er freistandi og gaman. Fyrsti og eini rigningardagurinn í 4-5 vikur var á mánudaginn og það var bara ausandi rigning allann daginn. Ég var rennandi í gegn og það tók mig um 40 min að hjóla heim. En núna er bara hiti og sól og spáin fyrir helgina er bara steik. Peter er að búa sig undir smá lokatörn í skólanum. Hann klárar þann 19.júní

Læt nokkrar myndir frá grillveislu Soffíu og Árna fyrir 3 vikum fylgja.

9 comments:

Anonymous said...

EN GAMAN! og flott mynd af þér sæta. Tel dagana.
ask

Anonymous said...

Vá hvað bumban er orðin flott og bumban á Peter er ekki verri!
Kv Eva

Anonymous said...

Va, hvad thu ert med saeta bumubu. Oh er svo stolt af ther med vinnuna og allt saman. Knus og kossar, Eva

Anonymous said...

20 dagar!
ask

Anonymous said...

Jibby, 20 dagar. Er líka að telja. Sem betur fer er margt og mikið að gerast hjá okkur alltaf og því líður tíminn hratt. Það er núna komið fullt plan hjá okkur til 15. júlí!!
Linda

Iris Heidur said...

Jiii hvað þú ert flott. Bumban hefur greinilega tekið góðan kipp síðan ég sá mynd af þér síðast. Greinilegt að Peter er ekki eins meðvirkur og Óskar var þegar ég gekk með Dagmar ;)
Öfunda ykkur af góða veðrinu...langar í danskt sumar!!
Knús og kossar,
Íris

Anonymous said...

17 dagar
ask

Anonymous said...

Váá hvað bumban er orðin flott :) verður gaman að fá að knúsa ykkur í júlí. :) Ég er búin að panta gott veður þá.

Knús og kossar,
Hildur & Tinna Rut

Anonymous said...

Takk sætu mínar, hlakka til að fá ykkur allar og auðvitað verður gott veður hjá öllum og bara tóm hamingja!
Linda og bumbubúi